895-1050 - Stór-Reykjavíkursvæðið

849-4012 - Akureyri

Hin árlega þjónusturáðstefna AA-samtakanna á Íslandi er haldin á laugardegi í maí ár hvert. Allar AA-deildir á Íslandi geta sent einn fulltrúa á ráðstefnuna. Skráningarbréfið á ráðstefnuna verður sent öllum AA-deildum í febrúar og skráningarfrestur á ráðstefnuna er út apríl.

Ráðstefnan stendur í einn dag og fá skráðir ráðstefnugestir dagskrá senda með tölvupósti dagana fyrir ráðstefnuna, en önnur gögn eru afhent við komuna.
Athugið að aðeins ráðstefnuskráðir AA-félagar sitja ráðstefnuna.

Landsþjónusutráðstefnan setin af AA-félögum, en fyrirkomulag okkar á Íslandi er þannig að hver AA-deild getur sent einn fulltrúa á ráðstefnuna. Einnig sitja hana landsþjónustumenn, en landsþjónustunefnd heldur ráðstefnuna og að auki sitja fulltrúar ýmis annars nefndarstarfs á vegum AA-samtakanna. Æskilegt er þó að þeir séu sendir á vegum sinnar AA-deildar, til þess að skekkja ekki vægi deilda. Allt eru þetta AA-félagar, en undantekning á þessu eru ei-alkarnir þrír.

Samkvæmt erfðavenjum AA-samtakanna um nafnleynd og vegna sérstöðu samtakanna sitja hana ekki aðrir gestir en að ofan getur. Fundargerðir eldri ráðstefna eru á heimasíðunni en nöfnum manna er þá breytt þannig að upphafsstafir einir koma í stað nafnsins. Vegna sérstöðu íslenska nafnakerfisins þykir ekki nóg að taka eingöngu út eftirnafn manna eins og gert er t.d. í Ameríku og víðar og hafa upphafsstaf þar, því að á Íslandi er almennt notað skírnarnafn um menn. Þetta er gert í anda elleftu og tólftu erfðavenju AA-samtakanna um nafnleynd á opinberum vettvangi og með sameiginlega velferð okkar í huga.