|
Kynning á landsþjónustunefnd »» smellið hér
Starfsár Landsþjónustunefndar AA samtakanna er frá 1. maí ár hvert og til loka apríl árinu seinna. Miðast það við árlega ráðstefnu AA samtakanna sem nefndin boðar til í maí á hverju ári en hefst þá um leið nýtt starfsár. Landsþjónustunefnd kemur saman mánaðarlega að jafnaði og hefur sú hefð skapast að miða við síðasta mánudag í hverjum mánuði. Nefndin hittist þó ekki formlega eftir ráðstefnuna í maí, fyrr en í september, eftir sumarleyfismánuðuna þrjá: júní, júlí og ágúst. Meiri fróðleik um um störf og hlutverk LÞN má finna í þjónustuhandbókinni hér á heimasíðunni.
Hér að neðan má lesa fundagerðir LÞN á pdf formi. Smellið á tengil fyrir hvert starfsár og skjalið opnast. Ekki er æskilegt að fundargerðirnar séu birtar að hluta eða heild opinberlega á öðrum vettvangi.
Fundargerðir LÞN » »
2004 - 2005 / 2005 - 2006 / 2006 - 2007 / 2007 - 2008 / 2008-2009 /
Fundargerðir fyrir yfirstandandi starfsár Landsþjónustunefndar koma hér að neðan, í tímaröð.
Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu AA samtakanna.
Starfsárið 2009-2010:
LANDSÞJÓNUSTUNEFND AA Á ÍSLANDI
National Service Board of Alcoholics Anonymous in Iceland
____________________________________________
Fyrsti fundur Landsþjónustunefndar AA-samtakanna á starfsárinu 2009-2010
Haldinn í Víðistaðaskóla, Hafnarfirði, laugardaginn 9 maí 2009 kl. 12:00.
Landsþjónustumenn mættir: K.E., H.S., S.F., I.I., H.G., L.V., B.S., J.H., E.S., J.B., og S.B. Forföll hafði boðað H.B. Starfsmaður af skrifstofu ritar fundargerð.
H.G., nýr öldungur nefndarinnar boðinn velkominn til starfa, en E.Þ. öldungur hefur lokið tveggja ára þjónustu og starfar ekki lengur með nefndinni.
1. Fundargerð síðasta fundar er samþykkt.
2. Nýr oddamaður LÞN: K.E. kemur með tillögu um að S.F. taki við sem nýr oddamaður nefndarinnar til næsta árs en K.E. sitji til hliðar til halds og trausts. Nefndarmenn almennt ánægðir með að prófa þetta. K.E. finnst ekki viðeigandi að sitja sem oddamaður í 2. ár, en hann er nú einn landsþjónustumanna kominn á 5. ár í þjónustu fyrir nefndina. Samþykkt með lófaklappi og S.F. tekur við sem oddamaður LÞN.
3. Önnur mál: L.V. leggur til að kaflinn um fjármál úr þjónustuhandbók AA samtakanna sé birtur á heimasíðunni hjá framlagalista AA deilda. Einnig rætt um nauðsyn þess að aðgreina fjármál AA útgáfunnar og landsþjónustunefndar á netinu til glöggvunar fyrir þá sem ekki vita að þessi rekstur er aðskilinn. Rætt um að setja hnapp á heimasíðuna undir heitinu ,,bréf til AA deilda” þannig að alltaf sé ljóst hvenær bréf eru send frá AA skrifstofunni og fólk geti þannig gáð að því hvort þau berast í deildina sína. Beint til vefnefndar. Ekki var annað tekið fyrir.
LANDSÞJÓNUSTUNEFND AA Á ÍSLANDI
National Service Board of Alcoholics Anonymous in Iceland
____________________________________________
Annar fundur Landsþjónustunefndar AA-samtakanna á starfsárinu 2009-2010
Haldinn að Tjarnargötu 20, sal A, þriðjudaginn 29. september 2009 kl. 17:00.
Landsþjónustumenn mættir: K.E., H.S., S.F., H.G., L.V., B.S., J.H., H.B. og S.B. Forföll höfðu boðað I.I., J.B. og E.S. Starfsmaður af skrifstofu ritar fundargerð.
Oddamaður landsþjónustunefndar, S.F., greinir frá orsökum breytinga á fundardegi frá mánudegi til þriðjudags, sem verður að vera a.m.k. til áramóta til þess að oddamanni sé kleyft að taka þátt í starfi vetrarins. Eftir umræðu um þetta verður úr að færa fundartímann fram um hálftíma, til kl. 16:30, á meðan þessi dagaskipti standa og er það samþykkt.
1. Fundargerð síðasta fundar er samþykkt.
2. Frá skrifstofu: Borist hafði frá GSO í New York sending með skráningarblöðum vegna 75 ára hátíðar AA samtakanna (The International Convention), sem haldin er næsta sumar í San Antonio. Ákveðið að starfsmaður setji inn á heimasíðuna upplýsingar um þetta og það að eyðublaðið megi nálgast á skrifstofu AA samtakanna, fyrir þá sem áhuga hafa á að fara. Einnig hafði borist erindi frá Rauða krossinum vegna aðstoðar við útigangsmenn sem ef til vill hefðu áhuga á að kynna sér AA samtökin og er því vísað til SAAS í tengslum við neyðarsímann og tólftasporslista þeirra. Starfsmaður skrifstofunnar kemur með fyrirspurn um hvort landsþjónustunefnd óski eftir því að samtal um framlög deilda sé haft á baugi á skrifstofunni, þegar fólk heimsækir hana á vegum deilda, en var í vafa um þetta eftir umræður á landsþjónusturáðstefnunni. LÞN vill að starfsmaður sinni þessu eins og verið hefur.
3. Landsþjónustumenn greina frá störfum milli funda: - Upplýsingarnefnd hefur starfað í sumar, en allir landsþjónustumenn sem í henni starfa eru forfallaðir á þessum fundi LÞN. Starfsmaður kemur til skila frá oddamanni ULÞN upplýsingum um störf nefndarinnar yfir sumarið: Þá ber helst til að tvö erindi vegna kynningarmála höfðu borist nefndinni, annað vegna árlegs hátíðarfundar SÁÁ þann 7. október og hitt vegna Alþjóða geðheilbrigðisdagsins þann 10. október. ULÞN hafði fjallað um þetta og ákveðið að vera með kynningu vegna beggja. K.E. telur eðlilegt að landsþjónustunefnd berist fyrst slíkar beiðnir og samþykki þátttöku ULÞN í öllum nýjum kynningum svo sem á við um Alþjóða geðheilbrigðisdaginn að þessu sinni. Umræða varð um þetta og varð úr að starfsmanni var falið að hafa samband við oddamann ULÞN aftur og þá myndi hann gera frekari grein fyrir erindinu vegna Alþjóða geðheilbrigðisdagsins í skjali sem síðan verði sent til allra landsþjónustumanna til samþykktar, enda sé tíminn of naumur til annarrar úrvinnslu að þessu sinni þar eð næsti fundur landsþjónustunefndar verður í lok október.
- Ei-alkarnir í landsþjónustunefnd höfðu hist einu sinni um sumarið til að treysta böndin.
- Vefnefnd hefur sett inn hnapp vegna bréfa til AA deilda. Til frekari úrvinnslu er að gera grein fyrir muninum á rekstri AA samtakanna sem landssamtaka og rekstri AA útgáfunnar, en það mun koma í tengslum við nýja heimasíðu AA útgáfunnar, sem nú er í vinnslu.
- Ritari landsþjónusturáðstefnunnar mun skila fundargerð vegna hennar á næsta fundi landsþjónustunnar.
Landsþjónustumenn skipa með sér störfum og varð úr að skipan í milliþinganefnd er óbreytt, frá síðasta starfsári, sem og í ULÞN. Í kjörnefnd kemur S.B. ei-alki í stað E.Þ. ei- alka og K.E. gefur kost á sér áfram. Einnig gefur S.F. kost á sér í stað þess sem gekk út úr nefndinni eftir síðasta starfsár og eru báðir samþykktir.
4. Önnur mál. Rætt um Evrópuráðstefnuna sem haldin verður í lok október. H.S. gjaldkeri leggur til að þátttöku sé frestað að þessu sinni þar eð framlög deilda hafa verið langt undir rekstrarkostnaði í sumar, ávöxtun neikvæð og varasjóður til eins árs ekki fyrir hendi. Einnig sé gengið óhagstætt svo sem aldrei áður. K.E. leggur á það áherslu að mikilvægt sé að senda fulltrúa, þekking og tengslanet megi ekki fara forgörðum. Ekki liggur fyrir hverjir færu en ákvörðun um ráðstefnuna hafði verið frestað í vor og þetta farist fyrir í sumarfríum. L.V. minnir á hversu áríðandi það sé að hafa þetta á hreinu með eðlilegum fyrirvara. Eftir frekari umræðu er ákveðið að farið verði, K.E. hafði reiknað með að fara á seinna ári sínu og J.H. kemur inn sem fyrra árs fulltrúi, mun hann því einnig fara að tveim árum liðnum sem seinna árs fulltrúi.
Fram kemur að vinnu við að fá einkaleyfi til notkunar merkis AA samtakanna heima á Íslandi er enn fram haldið, en einkaleyfisstofa hefur erindið til umfjöllunar.
L.V. vill að LÞN hefji starf sitt fyrr á haustin, eðlilegt sé að halda fyrsta fund LÞN í ágústlok enda sé sumarfríum manna yfirleitt lokið þá. Hún vill einnig að til sé skjal með helstu minnispunktum til yfirferðar fyrir landsþjónustumenn á haustin, svo að starfið geti gengið sem skýrast og greiðast fyrir sig. Landsþjónustumönnum lýst almennt vel á þetta. K.E. vill að úrvinnsla álits hópastarfs frá landsþjónusturáðstefnu sé hluti af hauststarfinu.
Ekki var annað tekið fyrir. Fundi var slitið á hefðbundinn hátt.
LANDSÞJÓNUSTUNEFND AA Á ÍSLANDI
National Service Board of Alcoholics Anonymous in Iceland
____________________________________________
Þriðji fundur Landsþjónustunefndar AA-samtakanna á starfsárinu 2009-2010Haldinn að Tjarnargötu 20, sal A, þriðjudaginn 27.október 2009 kl. 16:30.
Landsþjónustumenn mættir: H.S., S.F., I.I., H.G., L.V., B.S., J.H., H.B. og J.B. Forföll höfðu boðað S.B., K.E. og E.S. og H.B. látið vita fyrirfram að hann þyrfti að hverfa frá um 17:30. Starfsmaður af skrifstofu ritar fundargerð.
1. Fundargerð síðasta fundar til samþykktar. Engar athugasemdir komu frá fundarmönnum sem mættir voru. Frá K.E. höfðu borist þrjár skriflegar athugasemdir og var það rætt. Ekki var um beinar tillögur um breytingar á fundargerð að ræða sem hægt væri að taka afstöðu til, því var ákveðið að hinkra með samþykkt fundargerðarinnar fram á næsta fund og gefa K.E. kost á að skýra athugasemdir sínar nánar. L.V. vill að bókað sé sérstaklega vegna athugasemdar númer þrjú, varðandi lið númer fjögur, að ekki er hægt að
gera athugasemdir við fundargerðir sem búið er að samþykkja. Engar athugasemdir eru gerðar við þessa bókun en landsþjónustumenn taka almennt undir þetta sjónarmið. H.B. vill að bókað sé að hann vill að fundargerðir séu sendar landsþjónustumönnum strax að loknum fundi LÞN.
2. Fundargerð frá landsþjónusturáðstefnu til samþykktar. Hún er samþykkt, með smávægilegum lagfæringum á orðalagi. Landsþjónustunefnd hefur þó ekki fengið lokatillögur 5. hóps um umræðuefni ráðstefnunnar sem haldin verður 2010 og verður fundargerðin ekki sett á netið fyrr en það hefur verið lesið yfir og sett inn í hana.
3. Frá skrifstofu. Erindi AA manns vegna Hálmstrásins, að bjóða gömul eintök til sölu í gegn um sölusíðu á netinu, rætt. Fyrir liggur að skannaðar verði inn reynslusögur og greinar á heimasíðu AA samtakanna og eins að gömul eintök eru til sölu á skrifstofunni á 50.kr/stk., ekki sé þörf á að ganga lengra en það.
4. Landsþjónustumenn greina frá störfum milli funda. (H.B. víkur af fundi) ULÞN hefur fundað. J.B hafði sent bréf til LÞN í tveim köflum, annars vegar sem oddamaður ULÞN og hins vegar sem ei-alki í LÞN. Bréf hafði borist frá einum landsþjónustumanni vegna þess, sem raunar er fjarverandi á þessum fundi, en J.B. gerir hér nánari grein fyrir tilurð bréfsins hvað störf ULÞN varðar. I.I: mikils virði sé að góð samskipti eru á milli ULÞN og USAAS (upplýsingarnefnd samstarfsnefndar AA deilda á stór-reykjavíkursvæðinu), en alltaf mæti maður frá þeim á fundi ULÞN.
Gjaldkeri fer yfir stöðu fjármála. Innkoma frá deildum er umtalsvert undir rekstrarkostnaði í sumar og gengur hratt á varasjóðinn. Málið rætt og verður rætt frekar á næsta fundi. L.V. leggur til að starfsmaður skrifstofu hafi samband við oddamann hverfisnefndar eitt í Reykjavík í tengslum við kynningarstarf þeirra á hvernig fjármunum er varið í AA samtökunum. I.I. og H.S. taka undir og er það samþykkt.
5. Önnur mál. J.H. kemur með erindi AA fólks utan af landi, en þar hafði fundarformi gamallar AA deildar verið breytt af þremur nýjum AA mönnum í deildinni og m.a. verið bætt við inngagnsorðin og lokaorðin. Beðið er um að menn frá landsþjónustu komi og sitji samviskufund. Málið rætt. H.G. öldungur þekkir frá því á starfsárum sínum í landsþjónustu að farið hafi verið svona ferðir, en leggur áherslu á að um erfðavenjubrot hafi þá að vera að ræða og aðeins hlutverk landsþjónustumanna að minna á þær. Ekki sé hægt að taka fram fyrir samvisku deilda og telur að ekki sé hér um erfðavenjubrot að ræða, heldur mismunandi fundarform, en menn þekkja þar ýmsar útgáfur. Ákveðið að J.H. verði í sambandi við AA fólkið símleiðis til stuðnings á úrvinnslu þessa máls hjá samvisku deildarinnar.
J.B. fjallar um fyrirspurn landsþjónustumanns er honum barst varðandi bréfið frá honum og fer yfir ástæður þessa hugleiðinga sinna, sem ei-alki í LÞN. Hann ræðir um að sjálfur hafi hann verði stjórnandi á sínum starfsferli og svo eigi við um marga landsþjónustumenn, en í þessum eina félagsskap þar sem ekki er um stjórn að ræða, heldur þjónustunefnd, sé gott að minna sig á að þetta er félagsskapur samsettur úr fjölda sjálfstæðra hópa. Starfsmenn/(nefndarmenn) okkar séu þjónar sem við treystum. Traustið sé mikilvægt, einnig reyndari AA manna gagnvart þeim sem óreyndari eru. Um þessa almennu hugvekju ei-alkans til landsþjónustunefndar í upphafi starfsvetrar segir hann að gott sé ef menn taki til sín og hugleiði, ef þeir vilja. S.F. oddamaður og J.H. taka undir þetta og telja sig hafa haft gott af því að lesa þessa hugleiðingu ei-alkans og almennt er ánægja með bréfið hjá landsþjónustunefnd.
J.H. greinir í aðalatriðum frá Evrópuráðstefnunni, en talað var þar um vandamál sem við hér þekkjum en þeir hafa leyst þar, og öfugt. Þar sé til dæmis almennt þjónustuhandbók ekki breytt nema með löngum ferli, tekur allt að þrjú ár. Spyr út í bækling ,,AA fyrir konur” sem oddamaður útgáfunefndar lét taka úr sölu í sumar eftir að í ljós kom við eftirgrennslan starfsmanns á skrifstofu að ekki hafði fengist þýðingarleyfi fyrir og fengist ekki. AA útgáfan hefur enn ekki fundað í haust og eftir er að fjalla formlega um það mál. Talar einnig um öldunga, hversu dýrmætri reynslu þeir búi yfir og hvernig sé hægt að nýta þá reynslu betur – einnig að þeir nái sambandi sín á milli, á milli landa.
Ekki var fleira rætt, og fundi slitið á hefðbundinn hátt.
LANDSÞJÓNUSTUNEFND AA Á ÍSLANDI
National Service Board of Alcoholics Anonymous in Iceland
____________________________________________
Fjórði fundur Landsþjónustunefndar AA-samtakanna á starfsárinu 2009-2010
Haldinn að Tjarnargötu 20, sal A, þriðjudaginn 24. nóvember 2009 kl. 16:30.
Landsþjónustumenn mættir: H.S., S.F., I.I., H.G., L.V., B.S., H.B., S.B., K.E. og J.B. Seint mætir I.I. Forföll höfðu boðað J.H. og E.S. og einnig hafði H.B. látið vita fyrirfram að hann þyrfti að hverfa frá um 17:30. Starfsmaður af skrifstofu er ritari fundar.
1. Fundargerðir síðasta fundar og frá septemberfundi til samþykktar
a) fundargerð frá í október er samþykkt með smávægilegum stafsetningar- og orðalagsbreytingum og við hana bætist sérbókun frá H.B.
b) fundargerð frá í september: K.E. óskar ekki eftir að athugasemdir verði settar í fundargerðina sem hann áður hafði sent með bréfi og því liggja þær hjá garði. Hann vill hins vegar að fram komi í fundargerðinni samræður frá fundinum, um að vinna við umsókn AA samtakanna á Íslandi vegna einkaleyfis á merki AA samtakanna hérlendis haldi áfram eins og áður hafði verið ákveðið. Fundargerðin er samþykkt.
2. Lokatillögur 5. hóps um umræðuefni landsþjónusturáðstefnunnar 2010
Höfðu verið sendar landsþjónustumönnum til yfirlestrar og nú ræddar. Meðal annars rætt um kynferðislega áreitni gagnvart konum á fundum og ólögráða einstaklinga sem sækja fundi og þörfina á að þessi mál séu almennt rædd á vettvangi AA samtakanna. Niðurstaðan er sú að landsþjónustumenn koma með frekari tillögur að útfærslum á spurningum um þetta, á næsta fundi. Fundargerð LÞR verður sett á netið þegar lokamynd er komin á hópastarfið. Rætt um dagsetningu á ráðstefnunni 2010, en helst eru líklegar 1. og 3. helgin, að vanda í maí.
3. Landsþjónustumenn greina frá störfum milli funda.
- S.F. oddamaður spyr um milliþinganefnd. Starfsmaður greinir frá því að öll gögn frá LÞR´09 og listi yfir breytingar á mannaskipan hafi verið send til K.S. sem þegar hefur samþykkt að halda áfram í nefndinni og að kalla hana saman til starfa.
- Skrifstofunefnd hefur ekki fundað, en oddamaður hyggst kalla hana saman fyrir áramót.
- ULÞN hefur fundað. Kynning á AA samtökunum var haldin hjá Háskóla Íslands þann 3. nóvember, en beiðni hafði borist um slíka kynningu. Upplýsingarfulltrúi SAAS tók að sér að sjá um kynninguna. Rætt um AA fundi sem slíka, sem hluta af námi og um formlega nálgun á samskiptum og frumkvæði á samvinnu við skólana. Einnig um muninn á opnum og lokuðum fundum. (H.B. víkur af fundi). Kynningarnar sem haldnar voru í október hjá SÁÁ og vegna Alþjóða geðheilbrigðisdagsins gengu einnig vel, en þörf er á betri merkingum á slíkum kynningum, t.d. að hafa merki AA samtakanna uppi á áberandi stað. E.S. ei-alki og annar fulltrúi úr ULÞN héldu þær kynningar. I.I. gerir að tillögu sinni að hnappur verði settur á vefsíðu AA samtakanna sem gæti heitið ,,hvað er AA fundur?” og að þar mætti skýrgreina muninn á opnum og lokuðum fundum ásamt fleiru tengt AA fundum. J.B. bætir við að hægt sé að setja inn á síðuna fróðleik um samvisku deilda og tilgang hennar. Þessu er vísað til vefnefndar.
4. Frá skrifstofu. Starfsmaður skrifstofu hefur verið í sambandi við oddamann hverfisnefndar eitt, P.S., í tengslum við kynningar þeirra á því hvernig fjármunum er varið innan AA samtakanna. Tók hann vel í erindið. L.V. og starfsmaður skrifi bréf til hverfisnefndar í tengslum við þetta sem P.S. getur lagt fram á hverfisnefndarfundi. Starfsmaður leggur fram drög að skjali með haustverkum LÞN og ákveðið að það verði sent á alla til frekari úrvinnslu fyrir næsta fund.
5. Önnur mál. B.S. ræðir fundarstjórn á landsþjónustufundum og landsþjónustumenn sammála um að góð fundarstjórn sé markviss og fylgi dagskrá. Einnig var tilhögun á skipan og kosningar í nefndarstörf sem LÞN hefur með að
gera rædd, en L.V. telur að slíkt væri betur gert með kosningu fremur en tilnefningu og tillögum. K.E. vill að oddamanni hverfisnefndar eitt sé boðið í heimsókn á fund LÞN og saknar þess að vita hvað gengur hjá AA útgáfunni, en vill að oddamaður hennar komi einnig í heimsókn og greini frá starfsemi útgáfunnar. S.F. hyggst raunar bjóða þeim síðarnefnda á desemberfundinn en einnig muni hann koma á skrifstofunefndarfundinn. I.I. tekur undir sjónarmið L.V. um ,,uppástunguaðferð” innan starfa/nefnda, það sé verra ef t.d. dóminerandi aðilar tilnefna einhvern til starfs, en hinir kunna ekki við að segja neitt á móti. Kosning sé betri. Hann vill einnig bjóða upplýsingarfulltrúa SAAS í heimsókn til LÞN. K.E. vill fara að starfa eins fljótt og hægt er að samþykktum frá síðustu LÞR. H.G. öldungur minnir á að ef mikið er á dagskrá sé vel hægt að halda aukafundi hjá LÞN. Starfsmaður minnist á nauðsyn þess að menn haldi sambandi á milli nefnda, sérstaklega oddamenn, en það sé nauðsynlegt að um einhver samskipti sé að ræða, formleg eða óformleg.
Ekki var fleira rætt, og fundi slitið á hefðbundinn hátt.
Næsti fundur landsþjónustunefndar er boðaður þann 29. desember kl. 16:30.
LANDSÞJÓNUSTUNEFND AA Á ÍSLANDI
National Service Board of Alcoholics Anonymous in Iceland
____________________________________________
Fimmti fundur Landsþjónustunefndar AA-samtakanna á starfsárinu 2009-2010Haldinn að Tjarnargötu 20, sal C, mánudaginn 25. janúar 2010 kl. 17:00.
Landsþjónustumenn mættir: B.S., I.I., H.G., S.F., H.S., J.H., J.B., S.B., L.V. og K.E. Seint hafði boðað sig E.S. Afboðað hafði H.B. Starfsmaður af skrifstofu er ritari fundar.
1. Fulltrúi frá AA útgáfunni kemur í heimsókn. Gestir frá útgáfunni eru tveir, G.G og M.Þ. Þeir greina frá helstu verkefnum sem á baugi eru. Lokahönd er að koma á Hugleiðingu dagsins og unnið er að endurþýðingu 12&12. Handbók (þjónustuhandbók) er einnig í lokavinnslu og útgáfunefnd hefir rætt um hvort rétt sé að hafa hana sem vefrit eða gefa hana út, með tilliti til þess að hún getur verið breytileg á milli ára og getur upplag þannig orðið úrelt. Einnig sé hægt að ljósrita á skrifstofu. Unnið hefur verið að þýðingu bæklingsins ,,self-support – where money and spirituality mix” en óvíst með framhald á því. (E.S. mætir á fund). J.H. sýnir útgáfunefndarmönnum uppkast að þýðingu á bæklingi ,,younger people in AA”og þeir vilja láta vísa því til útgáfunefndar til umfjöllunar. Bæklingurinn ,,AA fyrir konur” hafði verði tekinn úr sölu sl. sumar, þegar í ljós kom að ekki var leyfi fyrir þýðingunni á honum og fyrirhugað er að vinna hann upp á nýtt. Gestir kveðja.
2. Fundargerð síðasta fundar til samþykktar. Hún er samþykkt.
3. Lokagerð hópastarfsspurninga fyrir LÞR 2010 Landsþjónustumenn vilja skerpa á orðalagi og bæta við tveimur spurningum og fela B.S. landsþjónustumanni sem einnig var í 5.hóp á ráðstefnunni og vann að verkefninu, að ljúka því máli og bera undir oddamann 5.hóps.
4. Landsþjónustumenn greina frá störfum milli funda.
- Gjaldkeri: jafnvægi er að komast á varasjóð, en framlög hafa aukist frá því sem var í sumar þegar halli var á rekstri um nokkurra mánaða skeið.
- Vefnefnd: rætt um það verkefni vefnefndar að koma upplýsingum um muninn á opnum og lokuðum fundum inn á heimasíðuna, sem og að þar séu upplýsingar um aðskilin fjárhag landsþjónustunnar og útgáfunnar. Fyrir liggur að iðulega gerist það að AA deildir kaupi AA bækur og gefi t.d. á meðferðarstöðvar eða í fangelsi, jafnvel fyrir allt umframfé sitt úr potti, í þeirri góðu trú að þannig sé verið að leggja fé til vegna reksturs landssamtakanna. Vefnefnd mun skrifa texta um þetta og landsþjónustunefnd líta yfir.
- Upplýsingarnefnd: hafa fundað tvisvar og rætt um þörf á fræðslu innan samtakanna t.d. um fundarform, samvisku deilda ofl., - einnig að það sé góð hugmynd að hafa fréttabréf, líkt og Box 459 í AA starfinu á Íslandi.
- Skrifstofunefnd: hafa komið saman. K.E. spyr um rekstrarkostnað skrifstofu og H.S. greinir frá að hann sé í svipuðu formi og verið hefur. S.B. ræðir um að hann sé genginn úr skrifstofunefnd, en hún var einum manni um of, miðað við það sem stendur í þjónustuhandbók, eftir að fulltrúi útgáfunefndar kom í hana sl. vor. Skrifstofunefnd fjallar um málefni og rekstur skrifstofunnar og fram hafði komið hjá fulltrúa útgáfunnar á fundi hennar að hann liti ekki svo á að hann kæmi á fund skrifstofunefndar til að ræða málefni útgáfunefndar. J.H. ræðir um að í ljósi þess að allur rekstur þurfi aðhald nú um stundir sé tæpt að leggja í mikla prentvinnu þar t.d. á verkefnum útgáfunefndar, svo sem á þjónustuhandbók.
5. Frá skrifstofu. Starfsmaður ber fram erindi frá ensku deildunum sem starfa á Íslandi. Þær hyggjast leggja til að ráðstefna enskumælandi AA deilda í Evrópu komi til Íslands næst þegar hún verður haldin - á eftir þeirri sem framundan er, en þá er næsta staðsetning valin. Vilja gjarnan komast í samband við landsþjónustumann hér heima sem þekkir inn á form og hald ráðstefna. Landsþjónustunefnd tekur vel í þetta og tilnefnir K.E., sem tekur að sér að vera ensku deildunum til halds og trausts, verði af þessu.
6. Önnur mál. – Stofna þarf til afmælisnefndar sem árlega sér um að halda upp á afmæli AA samtakanna. H.B. er nefndur sem oddamaður í ár, og samþykktur. Gjaldkeri er sjálfskipaður, sem og skrifstofumaður, vegna starfssviða sinna. Einnig eru í henni J.H., og B.S. vill gjarnan bjóða sig fram, vonast til að komast. L.V. hefur haft á hendi kaffimálin undanfarin ár og er beðin um að taka það að sér, sem hún gerir. K.E. áréttar að áríðandi sé að þeir sem í nefndinni eru , séu á staðnum allan tímann.
- Dagsetning landsþjónusturáðstefnu er ákveðinn 8. maí nk. og verður hún haldin í Víðistaðaskóla eins og undanfarin ár.
- Heimsþjónusturáðstefnan, WSM, verður í Mexico næsta haust. I.I. fer sem annars árs fulltrúi frá Íslandi og er kosið á milli J.H. og B.S., sem báðir gefa kost á sér, sem fyrsta árs fulltrúa. Úr verður að J.H. fari. Rætt um kosti og galla þess að sami aðili fari á báðar ráðstefnur, sem og róteringuna á þessum málum.
- Vísanir til landsþjónustunefndar frá landsþjónusturáðstefnunni 2009: verður geymt fram á næsta fund, en haldinn verður aukafundur að viku liðinni, þar eð desemberfundur féll niður. Allir eru því samþykkir og boðað er til þess fundar næsta mánudag kl. 17:00.
- L.V. og I.I. hafa skilað minnisblaði vegna árlegra verka LÞN, en það var sent landsþjónustumönnum með fundarboði. Þau leggja fram tillögu um verklag við kjör í störf innan landsþjónustunefndar, svo sem oddamann, gjaldkera og ritara, sem og við mönnun í undirnefndir LÞN, og dreifa blaði með tillögunni (sjá fylgiskjal). Málið er kynnt og rætt og ýmis sjónarmið koma fram. Að lokum er greitt atkvæði um tillöguna og hún er felld, en tveir greiða með henni, einn situr hjá og aðrir á móti.
- Þau sjónarmið koma fram að þörf sé á konum í landsþjónustunefnd og einnig fulltrúum frá deildum á landsbyggðinni, með það í huga að hafa sem mesta breidd innan hennar.
Ekki var fjallað um fleira, og fundi slitið á hefðbundinn hátt.
Næsti fundur landsþjónustunefndar er boðaður þann 1. febrúar 2010.
Fylgiskjal:
Tillaga um kjör þjónustufulltrúa í trúnaðarstöður og undirnefndir LÞN
Landsþjónustunefnd samþykkir að þeir fulltrúar sem nefndinni ber samkvæmt þjónustuhandbók AA-samtakanna að skipa í kjörnefnd, milliþinganefnd og undirnefndir landsþjónustunefndar verði hér eftir kjörnir á formlegan hátt á fyrstu fundum nefndarinnar hvert starfsár.Kosið er milli allra gjaldgengra landsþjónustunefndarmanna nema þeir biðjist sérstaklega undan því að taka á sig þjónustu í tiltekinni stöðu eða ákveðinni nefnd. Hver landsþjónustunefndarmaður kýs þá tilskilinn fjölda fulltrúa, í hverja stöðu eða nefnd fyrir sig, í leynilegri kosningu.
Sama regla gildir um kosningu oddamanns, gjaldkera og ritara landsþjónustunefndar. *)
--------------------------------------
Nefndirnar sem um ræðir eru eftirfarandi:
1) Kjörnefnd en þar sitja 7 fulltrúar og þar af einn ei-alki. LÞR kýs 4 fulltrúa. LÞN skipar 3 fulltrúa og skal 1 vera úr hópi ei-alka. Fulltrúar í kjörnefnd eru tilnefndir til eins árs í senn. Enginn getur setið lengur í kjörnefnd en 4 ár samfellt.
2) Milliþinganefnd en þar sitja 7 fulltrúar. LÞR kýs 4 fulltrúa. LÞN skipar 3 fulltrúa.
3) AA- útgáfa. Þar sitja 5 fulltrúar sem eru kjörnir til þriggja ára. LÞN kýs nýjan fulltrúa þegar þriggja ára tímabili lýkur.
4) Skrifstofunefnd en þar sitja 4 fulltrúar. Oddviti og gjaldkeri eiga ávallt sæti í nefndinni. AA-útgáfa skipar 1 fulltrúa. LÞN skipar einn fulltrúa.
5) Upplýsinganefnd en þar sitja 7 fulltrúar og þar af einn ei-alki. LÞR kýs 4 fulltrúa þannig að árlega skal kjósa 2 fulltrúa til tveggja ára í senn. AA-útgáfa skipar 1 fulltrúa. LÞN skipar 2 fulltrúa og er annar þeirra úr hópi ei-alka. Enginn AA-félagi skal sitja lengur í upplýsinganefnd en 4 ár samfellt.
6) Vefnefnd en þar sitja 3 fulltrúar. Starfsmaður skrifstofu á ávallt sæti í nefndinni. LÞN skipar 2 fulltrúa til tveggja ára í senn. Enginn AA-félagi má sitja lengur í vefnefnd en 4 ár samfellt.
*) Í þjónustuhandbók AA segir: Á fyrsta fundi nýskipaðrar landsþjónustunefndar skiptir nefndin með sér verkum, kýs oddvita, gjaldkera og ritara úr sínum hópi.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
fundargerðir frá febrúar til apríl koma inn á netið eftir landsþjónusturáðstefnuna í vor.
|