AA samtökin á Íslandi


    Neyðarsími AA samtakanna er  895 1050.

Neyðarsíminn er opinn allan sólarhringinn til að sinna alkóhólistum í neyð.      Þegar einstaklingur, sem telur sig ekki ráða við áfengisneyslu sína hringir, er honum komið í samband við AA mann með sambærilega fyrri reynslu af vanda vegna áfengisneyslu, til aðstoðar og til að svara spurningum. Einnig svarar símaþjónustan öllum fyrirspurnum og reynt er að leysa úr þeim málum sem berast eftir því sem kostur er. Vanir AA félagar eru við símann til að aðstoða þá sem hringja.  Neyðarsíminn er starfræktur í þeim anda innan AA samtakanna sem segir:

Ég er ábyrgur

Þegar einhver biður um hjálp, hvar sem hann er staddur,
vil ég að útrétt hönd AA samtakanna sé þar nærri,
og ég ber ábyrgð á því.


Skrifstofa AA samtakanna er opin alla virka daga frá 11:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00. Þar er fastráðinn starfsmaður á vegum AA samtakanna. Skrifstofan veitir allar upplýsingar um starfsemi samtakanna, ásamt upplýsingum um AA fundi auk þess veita millgöngu erindum til Landsþjónustunefndar sem og til annarra nefnda innan AA samtakanna. Skrifstofan þjónustar deildir, hefur á takteini bækur og bæklinga með AA efni, heldur utan um fundarskrá fyrir AA-fundi og greiðir úr þeim erindum sem berast inn á borð svo sem kostur er til. 
Síminn er 551 2010

AA samtökin á Íslandi • Tjarnargata 20 • 101 Reykjavík • Sími: 551 2010 • Fax: 562 8814 • Póstfang: aa(hjá)aa.is
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is