|
 |
 |
Grundvöllur AA samtakanna eru tólf reynsluspor og tólf erfðavenjur.
12 Reynsluspor:
1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart áfengi og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.
2. Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.
3. Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja umsjá Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.
4. Við gerðum rækilega og óttalaust siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.
5. Við játuðum misgjörðir okkar fyrir Guði, sjálfum okkur og annarri manneskju og nákvæmlega
hvað í þeim fólst.
6. Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina.
7. Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.
8. Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús til að bæta fyrir þær.
9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan.
10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af bar viðurkenndum yfirsjónir okkar umsvifalaust.
11. Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um það eitt að vita vilja hans og hafa mátt til að framkvæma hann.
12. Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum alkóhólistum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi.
12 Erfðavenjur:
1. Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins er undir einingu AA samtakanna kominn.
2. Í málum deilda er aðeins einn leiðtogi, kærleiksríkur Guð eins og hann birtist í samvisku hvers
hóps. Forsvarsmenn okkar eru þjónar sem við treystum en ekki stjórnendur.
3. Til þess að gerast AA félagi þarf aðeins eitt: Löngun til að hætta að drekka.
4. Sérhver AA deild á að vera sjálfstæð nema í málum er varða aðrar deildir eða AA samtökin í heild.
5. Sérhver deild hefur aðeins eitt meginmarkmið: Að flytja alkóhólistum sem enn þjást boðskap samtakanna.
6. AA deild ætti aldrei að ljá öðrum samtökum eða málstað nafn sitt, fjármagn, fylgi- eða lausafé, svo eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki frá hinum upphaflega tilgangi.
7. Sérhver AA deild ætti að standa á eigin fótum og hafna utanaðkomandi fjárhagsaðstoð.
8. Félagar í AA samtökunum eru ætið einungis áhugamenn, en þjónustumiðstöðvar okkar mega ráða launað starfsfólk.
9. AA samtökin sem slík ætti aldrei að skipuleggja, en við getum myndað þjónustunefndir og ráð sem eru ábyrg gagnvart þeim sem þau starfa fyrir.
10. AA samtökin taka ekki afstöðu til annara mála en sinna eigin. Nafni þeirra ætti því að halda utan við deilur og dægurþras.
11. Afstaða okkar út á við byggist fyrst og fremst á aðlöðun en ekki áróðri. Í fjölmiðlum ættum við ætíð að gæta nafnleyndar.
12. Nafnleyndin er andlegur grundvöllur erfðavenja okkar og minnir okkur á að setja málefni og markmið ofar eigin hag.
|
|
 |
|