Athugið: Bréf vegna tilnefningar til landsþjónustu og vegna skráningar á þjónusturáðstefnuna voru send út í byrjun febrúar.
Frestur deilda til að tilnefna fulltrúa til starfa í landsþjónustunefnd rann út 15. mars. Þá tók kjörnefnd við tilnefningum og hefst síðan handa við að vinna úr þeim. Kjörnefnd er skipuð sjö mönnum og að meirihluta (fjórir) skipuð með kjöri úr hópi ráðstefnugesta á þjónusturáðstefnu árið áður og svo þremur sem landsþjónustunefnd skipar, en þar af alltaf einn ei-alki.
Hægt er að skrá fulltrúa deilda á þjónusturáðstefnuna allt til 15. apríl.
Bréf sem berast árlega öllum AA deildum á Íslandi:
Í janúar-febrúar ár hvert sendir skrifstofa landsþjónustunefndar bréf til allra AA deilda á Íslandi með tveim skráningarblöðum, annað vegna þjónusturáðstefnunnar og hitt vegna þjónustu í landsþjónustunefnd. Samviska hverrar deildar tekur þessi mál fyrir á samviskufundi og kjósi hún svo, sendir hún, innan tilskilins tíma, skráningarblað/blöð útfyllt aftur til baka á skrifstofu AA samtakanna, svo úr megi vinna.
Í nóvember ár hvert er hefð fyrir því að halda erfðavenjumánuð á Íslandi. Þá er sent út bréf til deilda með spurningalistum þar sem íhuga má erfðavenjurnar og rifja þær upp. Þetta bréf er sent út í lok október á hverju ári.
Þessi tvö bréf eru send árvisst. Fleiri bréf geta verið send út frá skrifstofunni en það er tilfallandi.
Athugið sérstaklega að bréfin eru send út til AA deilda samkvæmt fundaskrá AA samtakanna og af því leiðir að ekki berst póstur til þeirra AA deilda sem ekki eru rétt skráðar þar. Gott er ef AA menn og konur láta vita á skrifstofunni berist bréf ekki til deildarinnar þeirra, svo úr megi bæta. Einnig þurfa þjónustunefndir einstakra deilda að huga að því hvernig póstur berst til þeirra deilda sem starfa í kirkjum og öðrum samkomuhúsum. Nú mun samstarfsnefnd AA deilda á Stór-Reykjavíkursvæðinu (SAAS) einnig senda bréf árlega til AA deilda á höfuðborgarsvæðinu til að kynna sitt starf og gefa deildunum kost á að tilnefna fólk til þjónustustarfa.
Sérstaklega þarf að athuga að það eru tímamörk á skráningu vegna landsþjónusturáðstefnunnar og vegna framboðs til þjónustu í landsþjónustunefnd og því vert að gefa því gaum að bréf berist.
Bréf sem berast AA deildum eru ekki einkamál þjónustunefndar deildarinnar. Þau eru til allra AA manna sem deildina sækja og eru því lesin upp á fundi og fjallað frekar um efni þeirra á samviskufundi. Ef frekari upplýsinga er óskað má fá þær á skrifstofu AA samtakanna.
|