Á vegum AA samtakanna er til töluvert lesefni um alkóhólisma sem sjúkdóm og um lausnir til bata. Allar bækur og bæklingar sem AA útgáfan gefur út á Íslandi fást á skrifstofu AA samtakanna við Tjarnargötu. Við sendum í pósti til þeirra sem óska. Einnig má víða fá bækurnar okkar í bókabúðum.
AA útgáfan á Íslandi var upphaflega stofnuð árið 1975. AA samtökin höfðu starfað hér frá árinu 1954 en mönnum þótti orðið aðkallandi að AA bókin yrði þýdd á íslensku. Samkvæmt þeirri áherslu sem AA samtökin hafa á sínum ritum og útgáfumálum, höldum við sjálf utan um allt okkar lesefni og fáum ekki utanaðkomandi aðila til að vinna að því, svo efnisinntakið þynnist ekki í meðförum þeirra sem ekki eru sjálfir alkóhólistar. Því er AA útgafan nefnd skipuð óvirkum alkóhólistum, eins og almennt á við um nefndir innan AA samtakanna.
Útgáfunefnd sér um að láta þýða og vinna viðurkennt AA efni til útgáfu á Íslandi og hafa AA samtökin á Íslandi umboð einkaleyfishafa hjá GSO í Bandaríkjunum til þess. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þessi fyrsta AA bók var þýdd áttunda áratugnum og raunar er víða erlendis horft til þess núorðið, hversu marga titla við eigum sem snúið hefur verið á okkar eigið tungumál.
» » listi yfir efni frá AA útgáfunni
Auk íslenska AA lesefnisins, má nálgast ýmislegt AA efni á ensku og fleiri tungumálum á skrifstofunni, en hún er opin virka daga milli klukkan 11-12 og frá 13-16. |