AA samtökin á Íslandi

Gagnrýni

Stundum verðum við hissa, hneyksluð og reið þegar fólk hallmælir AA samtökunum. Okkur verður svo mikið um að við getum ekki fært okkur gagnrýnina í nyt.
Slík gremja aflar okkur ekki vina og þjónar engum tilgangi. Við getum vissulega bætt okkur í þessum efnum.

Sýnt er að samhæfni, öryggi og árangur AA samtakanna í framtíðinni mun að miklu leyti háð því að við temjum okkur friðsamleg viðbrögð gagnvart öðrum. Þessi afstaða krefst kostgæfni því að á meðan við drukkum hætti okkur til að reiðast, fyllast fjandskap, uppreisnarhug og árásarhneigð. Þótt af okkur hafi runnið lúrir gamla háttalagið enn í okkur og við getum misst stjórn á okkur af minnsta tilefni.
Nú vitum við þetta og þess vegna er ég viss um að við munum sýna meiri varkárni í samskiptum við aðra.

                                                                  Lífsviðhorf Bills, bls 56

AA samtökin á Íslandi • Tjarnargata 20 • 101 Reykjavík • Sími: 551 2010 • Fax: 562 8814 • Póstfang: aa(hjá)aa.is
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is